Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. október 2014 10:00
Magnús Már Einarsson
Gareth Bale ekki með gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Gareth Bale verður ekki með Real Madrid þegar liðið heimsækir Liverpool í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Bale meiddist í landsliðsverkefni með Wales á dögunum.

Hann sat allan tímann á varamannabekknum þegar Real Madrid sigraði Levante 5-0 um helgina og nýjustu fréttir herma að hann verði ekki klár í slaginn á miðvikudag.

Real Madrid er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í Meistaradeildinni á meðan Liverpool er með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner