Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. október 2014 11:29
Magnús Már Einarsson
Sindri Snær skrifar undir nýjan samning við KR
Tvífarar dagsins?
Tvífarar dagsins?
Mynd: Twitter
Sindri Snær Jensson skrifaði í morgun undir nýjan tveggja ára samning við KR.

Sindri Snær kom til KR í vor eftir að hafa verið erlendis í eitt og hálft ár.

Í sumar var hann varamarkvörður KR en hann kom við sögu í fjórum leikjum í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum.

,,Nú í morgun skrifaði ég undir nýjan tveggja ára samning við Stórveldið. Næsta mál á dagskrá er að slá Stefán Loga út," sagði Sindri Snær á Twitter í dag og birti myndina hér til hliðar.

Sindri Snær spilaði með Val 2011 og 2012 en hann lék einnig áður með uppeldisfélagi sínu Þrótti.
Athugasemdir
banner
banner