mið 22. október 2014 11:49
Magnús Már Einarsson
Ingimundur Níels reiknar með að vera áfram í FH
Ingimundur Níels Óskarsson.
Ingimundur Níels Óskarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimundur Níels Óskarsson reiknar með að vera áfram í herbúðum FH:

Samningur hans við félagið rennur út um mánaðarmótin og önnur félög hafa sýnt Ingimundi áhuga. Hans fyrsti kostur í augnablikinu er þó að vera áfram hjá FH.

,,Ég hitti FH-ingana í kvöld og reikna með að vera áfram þar," sagði Ingimundur við Fótbolta.net í dag en önnur félög hafa heyrt í honum.

,,Ég hef fengið nokkur símtöl en ég ætla að heyra hvað FH-ingarnir segja áður en ég skoða eitthvað annað."

Ingimundur er 28 ára gamall en hann hefur spilað með FH síðustu tvö tímabil. Þar áður spilaði Ingimundur með Fylki, KR og uppeldisfélagi sínu Fjölni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner