Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. október 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Sameiginlegt lið Real Madrid og Barcelona: Fleiri frá Real
Við fáum stórleik á laugardaginn.
Við fáum stórleik á laugardaginn.
Mynd: Getty Images
Real Madrid og Barcelona mætast í spænsku úrvalsdeildinni á laugardag klukkan 16:00 en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Guillem Balague, sérfræðingur Sky Sports í spænska boltanum. hefur sett saman sameiginlegt byrjunarlið frá þessum tveimur stórveldum.

Ótrúlegt úrval er af heimsklassa leikmönnum í liðunum en Balague ákvað að velja sex leikmenn frá Real Madrid og fimm frá Barcelona.

Jordi Alba er eini leikmaðurinn úr Barcelona sem er í vörninni hjá Balague en Börsungar eiga fleiri menn á miðjunni í staðinn.

Hér að neðan má sjá þetta gríðarlega sterka lið.
Athugasemdir
banner
banner