Ingvar Þór Kale segist vilja vera áfram í herbúðum Víkings en samningur hans við félagið rennur út um áramótin.
Ingvar hefur ekki hafið viðræður um nýjan samning en hann segist vilja vera áfram í Fossvoginum.
Ingvar hefur ekki hafið viðræður um nýjan samning en hann segist vilja vera áfram í Fossvoginum.
,,Það heillar að sjálfsögðu að vera áfram í uppeldisfélaginu þegar það gengur vel," sagði Ingvar við Fótbolta.net í dag.
Ingvar er í fríi í Orlando en kemur heim síðar í vikunni. Þá ættu hans mál að skýrast. ,,Ég hef ekki heyrt í öðrum félögum en ég mun skoða þetta vel."
Ingvar er 31 árs gamall en hann kom aftur í uppeldisfélag sitt Víking frá Breiðabliki fyrir tveimur árum.
Athugasemdir