Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. október 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Marko Valdimar skoðar möguleika á Norðurlöndunum
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Marko Valdimar Stefánsson, leikmaður Grindavíkur, gæti verið á förum frá félaginu en hann er að skoða sína möguleika heima sem og á Norðurlöndunum.

Marko Valdimar er 24 ára gamall varnar og miðjumaður en hann verður samningslaus um mánaðarmótin.

,,Ég er búinn að heyra af áhuga hjá einhverjum liðum hér heima en ég hef ennþá á að fara út. Ef það tekst ekki þá er ég tilbúinn að skoða alla möguleika," sagði Marko við Fótbolta.net.

Marko Valdimar spilaði árið 2010 í Svíþjóð með liði Oskarshamn og hann gæti farið aftur þangað.

,,Þeir eru komnir upp í 1. deild í Svíþjóð og ég veit af áhuga hjá þeim," sagði Marko.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner