Tottenham er tveimur mörkum yfir gegn Asteras Tripolis í toppbaráttu C-riðils.
Harry Kane kom heimamönnum í Tottenham yfir snemma í leiknum og bætti Erik Lamela öðru marki við á 30. mínútu.
Harry Kane kom heimamönnum í Tottenham yfir snemma í leiknum og bætti Erik Lamela öðru marki við á 30. mínútu.
Markið sem Lamela skoraði var hreint út sagt magnað og það má sjá á myndbandi hér fyrir neðan.
Lamela fær boltann fyrir utan teig og smellir honum í netið með mögnuðu rabona skoti.
Athugasemdir