Harry Kane skoraði þrjú mörk í 5-1 sigri Tottenham gegn Asteras Tripolis í toppslag C-riðils Evrópudeildarinnar.
Hugo Llrois var góður í marki heimamanna í leiknum og átti meðal annars eina heimsklassa markvörslu í síðari hálfleik.
Hugo Llrois var góður í marki heimamanna í leiknum og átti meðal annars eina heimsklassa markvörslu í síðari hálfleik.
Það var undir lok leiksins sem Lloris hljóp úr eigin vítateig til að vera á undan sóknarmanni andstæðinga til boltans. Sóknarmaðurinn vann kapphlaupið og Lloris gerðist sekur um að brjóta á.
Markvörðurinn franski fékk rautt spjald og því þurfti hetja leiksins, sóknarmaðurinn Kane, að fara í markið.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af frumraun Harry Kane í marki þar sem hann missir auðvelda aukaspyrnu undir sig og í netið.
Athugasemdir