Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. október 2014 11:41
Magnús Már Einarsson
Pogba framlengir - Þrefaldar launin
Mynd: Getty Images
Paul Pogba hefur framlengt samning sinn við Juventus til ársins 2019.

Talið er að Pogba muni þrefalda laun sín með nýja samningum.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur leikið frábærlega með Juventus síðan hann kom frá Manchester United fyrir tveimur árum.

Pogba hefur í kjölfarið verið orðaður við endurkomu til Manchester United en hann hefur líka verið orðaður við Chelsea og fleiri félög.

Nú er aftur á móti ljóst að Pogba verður áfram hjá Juventus næstu árin.
Athugasemdir
banner
banner