Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. október 2014 12:19
Elvar Geir Magnússon
Staðfest að Suarez mun spila á morgun
Luis Suarez á æfingu með Börsungum.
Luis Suarez á æfingu með Börsungum.
Mynd: Getty Images
Luis Enrique, þjálfari Barcelona, hefur staðfest að sóknarmaðurinn Luis Suarez muni spila sinn fyrsta opinbera leik fyrir félagið á morgun þegar leikið verður gegn Real Madrid í El Clasico.

Þessi fyrrum framherji Liverpool hefur lokið afplánun á fjögurra mánaða banni sem hann fékk fyrir að bíta varnarmanninn Giogio Chiellini á HM í sumar.

„Þetta er mikilvægur dagur fyrir hann," segir Enrique.

Barcelona fer í leikinn á toppi La Liga en Real Madrid er í þriðja sæti fjórum stigum á eftir.
Er Arne Slot rétti maðurinn fyrir Liverpool?
Athugasemdir
banner