Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. október 2014 06:00
Elvar Geir Magnússon
Rússland: Liðið hans Sölva upp í öruggt sæti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen lék að vanda allan tímann í vörn Ural sem vann 1-0 sigur gegn Arsenal Tula í rússnesku úrvalsdeildinni í gær.

Sölvi og félagar eru í baráttu á botni deildarinnar og sigurinn afar mikilvægur en eina mark leiksins kom á 38. mínútu.

Tula er í 16. og neðsta sæti en Ural lyfti sér upp í öruggt sæti með sigrinum, er með 10 stig eftir 11 leiki í 12. sæti.

Ragnar Sigurðsson og félagar í FC Krasnodar eru í fimmta sæti deildarinnar en þeir eiga leik á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner