fös 24. október 2014 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Rodallega sá um Jóa Berg og félaga
Jóhann Berg í leik með Charlton
Jóhann Berg í leik með Charlton
Mynd: Getty Images
Fulham 3 - 0 Charlton Athletic
1-0 Scott Parker ('6 )
2-0 Hugo Rodallega ('12 )
3-0 Hugo Rodallega ('89 )

Fulham fór létt með Charlton Athletic í ensku fyrstu deildinni í kvöld en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna. Jóhann Berg Guðmundsson kom við sögu.

Scott Parker kom Fulham yfir strax á 6. mínútu áður en Hugo Rodallega bætti við öðru marki sex mínútum síðar.

Jóhann Berg Guðmundsson kom inná sem varamaður þegar um það bil hálftími var eftir af leiknum en hann gekk til liðs við Charlton á frjálsri sölu í sumar.

Rodallega gerði út um leikinn á 89. mínútu með þriðja marki leiksins og 3-0 sigur Fulham staðreynd en eftir slæma byrjun virðist Fulham vera að koma sér aftur á beinu brautina.

Sigurinn fleytir Fulham í 19. sæti þar sem liðið er með 14 stig á meðan Charlton er í 7. sæti með 22 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner