lau 25. október 2014 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid vill kaupa Chicharito
Javier Hernandez
Javier Hernandez
Mynd: Getty Images
Spænska stórliðið Real Madrid vill kaupa Javier Hernandez frá Manchester United en hann er á láni hjá spænska stórliðinu. The Express greinir frá þessu.

Hernandez er kominn með þrjú mörk í fjórum deildarleikjum en hann hefur í heildina spilað mjög vel hjá spænska liðinu.

Hann kom frá Manchester United á láni í sumar en svo virðist sem að spænska liðið sé reiðubúið að kaupa hann.

Man Utd vill fá 17 milljónir punda fyrir hann en Madrídingar ætla að reyna að fá kaupverðið niður í 12 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner