Baldur Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar KR, var í símaviðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.
Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Rúnar Kristinsson er hættur þjálfun bikarmeistara KR og allt stefnir í að hann taki við Lilleström í Noregi.
Reiknað er með því að Bjarni Guðjónsson taki við þjálfun KR en Baldur sagði á X-inu í dag að KR-ingar stefndu á að hafa fréttamannafund á þriðjudag þar sem nýtt þjálfarateymi yrði kynnt til sögunnar.
Athugasemdir