Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. október 2014 16:46
Þórður Vilberg Guðmundsson
Rodgers: Við hefðum átt skilið að vinna
Brendan Rodgers
Brendan Rodgers
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool virtist nokkuð sáttur við sína menn eftir jafntefli við Hull á Anfield í dag.

“Við áttum erfiðan leik í miðri viku. Leikmenn mínir lögðu sig alla í þetta verkefni og við hefðum átt skilið að vinna,“

“ Mér fannst þetta í raun bara vera spurning um tíma hvenær við myndum skora. Við sköpuðum okkur færi og áttum 19 skot á markið. Ég get ekki beðið um meira,“

Þegar Rodgers var spurður út í dauðafæri sem Mario Balotelli fékk undir lok leiksins sagði hann:

“Mario verður svekktur. Fyrirgjöfin var fullkominn, en því miður náði hann ekki að nýta sér það,“

Liverpool situr eftir leikinn í 6. sæti með 14 stig, átta stigum á eftir toppliði Chelsea.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner