Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 26. október 2014 07:00
Elvar Geir Magnússon
Wenger: Sanchez býr yfir gríðarlegum gæðum
Alexis Sanchez setti tvö mörk í gær.
Alexis Sanchez setti tvö mörk í gær.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez nýtti sér herfileg varnarmistök Sunderland og skoraði bæði mörk Arsenal í 2-0 sigri í leik liðanna í gær.

„Hann þakkaði fyrir sig og refsaði fyrir þessi mistök. Sanchez býr yfir gríðarlegum gæðum og er hraður í fótunum. Þess vegna vinnur hann fleiri bolta en meðalleikmaður," segir Arsene Wenger, stjóri Arsenal.

„Hann er fljótur að snúa sér í vörn úr sókn. Hann er snöggur að hugsa og vinnur boltann mjög snöggt."

„Við vorum ákveðnir í að taka stigin þrjú og það tókst. Leikurinn síðasta miðvikudag í Meistaradeildinni var erfiður og við vissum að það yrði erfitt að ná fram okkar besta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner