Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. október 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Bayern gegn Dortmund í beinni
SkjárSport sýnir stórleik helgarinnar
Mynd: Fótbolti.net - SkjárSport
Mynd: Getty Images
Það eru níu leikir á dagskrá í þýsku efstu deildinni um helgina þar sem topplið Bayern München á heimaleik gegn Borussia Dortmund.

Dortmund hefur byrjað tímabilið ömurlega og er með sjö stig eftir níu umferðir, aðeins einu stigi frá fallsæti.

Leikurinn verður klukkan 17:30 á laugardag. SkjárSport sýnir hann í beinni en Elvar Geir Magnússon sér um að lýsa.

Það er einn leikur á dagskrá í kvöld föstudag þar sem Schalke mætir Augsburg en á laugardaginn er mikið um spennandi viðureignir þar sem Hamburger á leik við Bayer Leverkusen og Stuttgart fær Wolfsburg í heimsókn.

Á sunnudeginum á Borussia Mönchengladbach heimaleik gegn Hoffenheim í toppbaráttunni.

Hér fyrir neðan má sjá leikjadagskrána ásamt stöðutöflu.

Föstudagur:
19:30 Schalke - Augsburg (SkjárSport)

Laugardagur:
14:30 Hamburger - Bayer Leverkusen (SkjárSport)
14:30 Hannover - Eintracht Frankfurt
14:30 Mainz - Werder Bremen
14:30 VfB Stuttgart - Wolfsburg
17:30 FC Bayern - Borussia Dortmund (SkjárSport)

Sunnudagur:
14:30 B. M'Gladbach - Hoffenheim (SkjárSport)
16:30 Köln - Freiburg (SkjárSport)
16:30 Paderborn - Hertha Berlin
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 23 14 5 4 43 20 +23 47
2 FK Krasnodar 23 12 7 4 36 23 +13 43
3 Dinamo 23 10 8 5 36 31 +5 38
4 CSKA 23 9 10 4 43 31 +12 37
5 Lokomotiv 23 9 10 4 38 31 +7 37
6 Kr. Sovetov 23 10 6 7 41 33 +8 36
7 Spartak 23 10 5 8 29 28 +1 35
8 Rostov 23 9 7 7 35 33 +2 34
9 Rubin 23 9 5 9 20 29 -9 32
10 Nizhnyi Novgorod 23 8 4 11 21 26 -5 28
11 Orenburg 23 6 8 9 27 30 -3 26
12 Fakel 23 6 8 9 19 25 -6 26
13 Ural 23 6 5 12 22 36 -14 23
14 Baltica 23 5 5 13 21 27 -6 20
15 Akhmat Groznyi 23 5 5 13 21 36 -15 20
16 Sochi 23 4 6 13 24 37 -13 18
Athugasemdir
banner
banner