Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 31. október 2014 16:30
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Newcastle og Liverpool
Líkleg byrjunarlið á morgun.
Líkleg byrjunarlið á morgun.
Mynd: Guardian
Vinirnir Alan Pardew og Brendan Rodgers mætast í hádegisleiknum í enska boltanum á morgun klukkan 12:45 þar sem Newcastle og Liverpool eigast við.

Papiss Cisse ætti að geta spilað með Newcastle í leiknum en hann hefur fundið fyrir óþægindum vegna meiðsla í hné. Ef hann spilar ekki verður Ayoze Perez í fremstu víglínu.

Cheick Tiote er frá vegna meiðsla í kálfa og Mike Williamson er tæpur eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla.

Jose Enrique, varnarmaður Liverpool, er meiddur á hné og spilar ekki gegn sínu fyrrum félagi en Daniel Sturridge, Mamadou Sakho, Suso og Jon Flanagan eru einnig fjarri góðu gamni.

Liverpool er í sjöunda sæti með 14 stig en Newcastle er í fjórtánda sæti með 10 stig. Liverpool er ósigrað í síðustu fjórum viðureignum við Newcastle.

Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner