Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. nóvember 2014 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Böddi löpp framlengir við FH til þriggja ára
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar Böðvarsson, leikmaður FH í Pepsi-deild karla, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára.

Böðvar, sem er 19 ára gamall, lék ellefu leiki fyrir FH í sumar er liðið hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar.

Hann hefur framlengt samning sinn við FH til næstu þriggja ára en hann staðfesti það á Instagram.

FH-ingar fagna væntanlega því að hann hafi skrifað undir þriggja ára samning en þessi ungi og efnilegi leikmaður er iðulega kallaður ,,Böddi löpp" og virðist það hafa náð festu í knattspyrnusamfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner