Framundan eru tveir landsleikir hjá íslenska landsliðinu, vináttuleikur gegn Belgíu á miðvikudag og svo leikur gegn Tékklandi í undankeppni EM sunnudaginn á eftir.
Landsliðshópurinn var tilkynntur í gær en þar kemur fátt á óvart. Rætt var við Guðmund Hilmarsson, íþróttafréttamann Morgunblaðsins, í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.
Landsliðshópurinn var tilkynntur í gær en þar kemur fátt á óvart. Rætt var við Guðmund Hilmarsson, íþróttafréttamann Morgunblaðsins, í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.
„Ég átti von á því að það yrði stærri hópur og það kæmu fleiri inn. Það eru ýmsir kostir í boði og það sýnir hvernig þróunin hefur verið hjá okkur. Við eigum urmul af fótboltamönnum hér og þar," sagði Guðmundur.
Myndi gefa Gylfa frí gegn Belgum
Reikna má með því að allir þeir byrjunarliðsmenn sem eitthvað hafa verið tæpir fái frí gegn Belgum. Guðmundur myndi sjálfur hvíla Gylfa í Belgíuleiknum.
„Við vitum að Gylfi hefur verið hálf meiddur og ekki gengið alveg heill til skógar. Ég myndi sjálfur vilja að hann fengi frí frá þeim leik. Hann er að fara að spila á morgun erfiðan leik gegn Arsenal. Honum veitir ekki af að fá aukafrídag, ég veit að hann sjálfur er ósammála mér því hann vill spila alla leiki."
Myndi sætta mig við einn punkt
Leikurinn gegn Tékklandi í Plzen er stóra málið. Fyrirfram segist Guðmundur sætta sig við jafntefli úr þeim leik.
„Liðið fer í alla leiki til að vinna en Tékkland er virkilega flott fótboltalið. Þetta er góð liðsheild og ekki margar stjörnur. Ég myndi sætta mig við einn punkt í Tékklandi en maður er orðinn gráðugur þegar vel gengur. Þessu liði eru allir vegir færir."
Guðmundur skrifaði pistil í Morgunblaðinu í vikunni þar sem hann segir þá skoðun sína að Kolbeinn Sigþórsson þurfi að koma sér frá Ajax.
„Mér finnst sorglegt hvernig komið er fyrir Kolla í þessu liði. Það er mikið um úrslitasendingar og reynt að togast í gegnum miðjuna. Við vitum styrkleika þessa stráks, hann er sterkur í teignum og tapar varla skallaeinvígi. Ég vil helst sjá hann á Englandi, þar myndi hann njóta sín vel. Ég hef áhyggjur af Kolla í þessari stöðu," sagði Guðmundur en viðtalið má nálgast í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir