fim 19. ágúst 2004 12:01
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Þórarinn Brynjar Kristjánsson (Keflavík)
Mynd: Magnús Már Einarsson
Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Þórarinn Brynjar Kristjánsson sem lék sinn fyrsta leik með Keflavík fimmtán ára gamall gegn ÍBV á heimavelli. Þórarinn kom inn á sem varamaður á 58.mínútu og skoraði eina mark leiksins með sinni fyrstu snertingu og bjargaði Keflavík frá falli. Eftir þetta hefur Þórarinn verið kallaður "Bjargvætturinn" enda hefur hann oft bjargað Keflvíkingum.

Þórarinn var næstmarkahæstur í fyrstu deild í fyrra með fjórtán mörk en hann hefur alltaf leikið með Keflvíkingum. Þórarinn hefur verið í miklu stuði að undanförnu og skorað sex mörk í seinustu þremur leikjum Keflvíkinga. Hann á ellefu leiki að baki með U-21 árs landsliðinu, sjö með U-19 ára og átján með U-17 ára en hann skoraði fimm mörk fyrir U-19 ára liðið og sjö mörk fyrir U-17 ára liðið.

Smellið hér til að sjá hina hliðina á Þórarinni
Slapp
banner
banner
banner