Paul Pogba, miðvallarleikmaður Juventus, er ánægður hjá félaginu.
Þessi frábæri leikmaður hefur mikið verið orðaður við Real Madrid undanfarnar vikur og einnig eru Manchester City, Chelsea og PSG sögð áhugasöm um að kaupa kappann.
,,Þetta var besti leikur minn á tímabilinu og ég vonast til að fylgja því eftir. Ég er alltaf að læra og reyna að bæta mig svo ég geti einn daginn orðið sá besti." sagði Pogba í viðtali eftir 3-0 sigurinn á Lazio í gær þar sem hann skoraði tvö mörk.
,,Real Madrid er frábært félag en ég er mjög ánægður hjá Juventus og vill halda svona áfram. Ég vonast til að vera hér í mörg ár í viðbót. Það er gaman að heyra þessar sögusagnir, en ég spila fyrir Juve og er glaður með það." sagði Frakkinn, augljóslega alsæll.
Athugasemdir