Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 23. nóvember 2014 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino: Aldrei auðvelt að spila gegn tíu leikmönnum
Mauricio Pochettino
Mauricio Pochettino
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur á Englandi, var ánægður með 1-2 sigur liðsins á Hull City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Tottenham rétt marði Hull en liðið lenti undir á 8. mínútu er Jake Livermore kom Hull yfir með frábæru marki.

Gaston Ramirez var rekinn af velli í byrjun síðari hálfleiks og Tottenham gekk á lagið. Harry Kane jafnaði metin áður en Christian Eriksen skoraði sigurmarkið undir lok leiks með laglegu skoti.

,,Þetta var mikilvægur sigur fyrir stuðningsmennina og félagið. Við sýndum það í byrjun síðari hálfleiks að við erum betra lið. Það er aldrei auðvelt að spila gegn tíu leikmönnum en þegar uppi er staðið þá áttum við sigurinn skilið," sagði Pochettino.
Athugasemdir
banner
banner
banner