Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. nóvember 2014 19:11
Brynjar Ingi Erluson
Falcao laus við meiðsli - Byrjaður að æfa aftur
Radamel Falcao
Radamel Falcao
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao, framherji Manchester United á Englandi, staðfesti í dag á samskiptavef Twitter að hann sé byrjaður að æfa á nýjan leik.

Falcao hefur ekki spilað með Manchester United í mánuð en hann hefur verið frá vegna meiðsla í kálfa.

Louis van Gaal, stjóri Man Utd, ákvað að velja hann ekki í hópinn gegn Arsenal í gær og greindi þar frá því að Falcao kæmi ekki til með að spila næstu tvær vikurnar.

Kólumbíski framherjinn kom þó með jákvæðar fréttir á Twitter í dag en hann segist vera hundrað prósent klár.

,,Mættur aftur á æfingu og er 100 prósent klár og tilbúinn til þess að hjálpa liðinu í næstu leikjum," sagði Falcao.
Athugasemdir
banner
banner
banner