Granada 0 - 0 Almeria
Rautt spjald: Ramon Azeez, Almeria ('53)
Rautt spjald: Ramon Azeez, Almeria ('53)
Granada gerði markalaust jafntefli við Almeria í eina leik kvöldsins og lokaleik 12. umferðar spænsku efstu deildarinnar.
Heimamenn í Granada voru mun betri og sóttu í sig veðrið frá upphafi til enda en vörn gestanna hélt vel.
Gestirnir frá Almeria léku manni færri síðustu 40 mínútur leiksins eftir að Ramon Azeez fékk sitt annað gula spjald fyrir heimskulegt brot.
Ruben í marki Almeria var besti maður vallarins og hélt sínum mönnum á floti allan leikinn.
Bæði lið eru í fallbaráttu, Almeria er með 10 stig og Granada 11 stig, einu stigi fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir