þri 25. nóvember 2014 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Totti með þrumufleyg úr aukaspyrnu
Mynd: Getty Images
Francesco Totti, leikmaður AS Roma á Ítalíu, skoraði magnað mark gegn CSKA Moskvu í kvöld en það kom beint úr aukaspyrnu.

Totti, sem er 38 ára gamall, skoraði eina mark Roma í kvöld en það gerði hann úr aukaspyrnu og var um að ræða sannkallaðan þrumufleyg.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en óhætt er að segja að Totti eldist vel.


Athugasemdir
banner
banner
banner