Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er við það að ganga frá samningum við spænska undrabarnið, Gorka Zabarte, sem er á mála hjá Real Madrid. Marca greindi frá þessu í gærkvöldi.
Zabarte, sem er 15 ára gamall, er miðvörður að upplagi en hann er einn efnilegasti leikmaðurinn í unglingaliði Real Madrid.
Hann verður 16 ára gamall í janúar en spænska dagblaðið Marca segir að hann sé nú þegar búinn að samþykkja samningstilboð frá Arsenal.
Arsenal náði í Cesc Fabregas frá Barcelona þegar hann var einungis 16 ára gamall en félagið vonast eftir að Gorka muni ná svipuðum hæðum.
Athugasemdir