„Ég er uppalinn hjá KR og á marga vini hérna. Þeir hafa talað við mig gegnum tíðina og spurt mig hvenær ég ætlaði að koma heim," segir varnarmiðjumaðurinn Kristinn Jóhannes Magnússon sem hefur yfirgefið Víking og er kominn í KR.
Kristinn var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardag en í spilaranum hér að ofan má hlusta á viðtalið.
„Ég hafði stefnt að því að snúa aftur í KR ef það myndi bjóðast. Það bauðst um daginn og ég ákvað að stökkva."
Kristinn spilaði stórt hlutverk í Víkingsliðinu sem komst upp í Pepsi-deildina og landaði Evrópusæti á liðnu tímabili.
„Ég kveð Víkingana með söknuði og hef átt góða tíma með þeim þessi ár sem ég spilaði þarna. Ég skil við liðið í mjög góðu standi. Það verður gaman að finna aftur þessa pressu sem er í Vesturbænum."
Athugasemdir