Newcastle með 20 milljón punda boð í Rooney
Sky Sports fréttastofan greindi frá því í kvöld að Newcastle United hefur lagt fram 20 milljón punda tilboð í enska sóknarmanninn Wayne Rooney hjá Everton. Newcastle ætlar að eyða peningnum sem liðið fékk fyrir söluna á Jonathan Woodgate. Framtíð Rooney á Goodison Park er í mikilli óvissu og hefur hann enn ekki skrifað undir samning við þá bláu.
Rooney varð einn eftirsóttasti leikmaður í Evrópu eftir að hann sló í gegn á Evrópumótinu í sumar. Manchester United, Chelsea og Real Madrid hafa öll verið orðuð við leikmanninn en forráðamenn Newcastle eru staðráðnir í því að fá hann á St James' Park. Hann væri tilvalinn til að taka stöðu Alan Shearer sem mun líklega leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.




