Newcastle býður 22 milljónir í Rooney
BBC sagði nú í morgun að Newcastle United hafi hækkað tilboð sitt í Wayne Rooney upp í 22 milljónir punda en fyrra tilboði félagsins upp á 20 milljónir punda var hafnað á mánudag. Everton villl fá 30 milljónir fyrir leikmanninn en talið er að Newcastle væri tilbúið að hækka sig í allt að 28 milljónir punda. Nánar af málum Rooney síðar.


