Manchester United býður í Wayne Rooney (Uppfært)
Everton hafa staðfest það að Manchester United hafi boðið 20 milljónir punda í Wayne Rooney. Boðið kom eftir að 20 milljón punda boði Newcastle í leikmanninn var hafnað. Boðið hlýtur að teljast virkilega skrýtið þar sem tilboði Newcastle af sömu upphæð hafði þegar verið hafnað.
Tilboðinu í Wayne Rooney verður væntanlega hafnað enda er David Moyes nýbúinn að gefa út viðvörun til Bobby Robson sem bauð sömu upphæð og Sir Alex Ferguson hjá United.
"Ég get staðfest að við buðum í leikmanninn en ég hef ekki nánari upplýsingar" sagði Phil Townsend talsmaður United áðan.
Moyes sagði þetta í dag: "Ég vil vitna í orð Bobby Robson: Það er verið að tala um að kaupa mest spennandi og frábærasta leikmann Evrópu" sagði Moyes um kollega sinn og hélt svo áfram. "Ef það er það sem honum finnst verður hann að borga mjög spennandi og frábæra upphæð. Hann er langt frá því núna."


