fös 19. desember 2014 12:30
Elvar Geir Magnússon
Wenger: Mætum óhræddir í leikinn gegn Liverpool
Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Mynd: Getty Images
Laurent Koscielny er enn á meiðslalistanum og verður ekki klár á sunnudag þegar Arsenal heimsækir Liverpool og þá mun Aaron Ramsey missa af jólatörninni.

Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Arsene Wenger hélt í morgun.

Þegar Liverpool og Arsenal mættust á Anfield á síðasta tímabili vann Liverpool 5-1 sigur en Wenger segir að sínir menn mæti óhræddir til leiks á sunnudag.

„Liverpool skoraði yfir hundrað mörk í deildinni síðasta tímabili og var frábært sóknarlega. Á þessu tímabili hefur liðið skorað 19 mörk svo það er ekki á sama skriði í sóknarleiknum," segir Wenger.

„Hver einasti tapleikur særir mann. Hvert tap myndar ör í hjarta þínu til eilífðar. En við eigum líka góðar minningar frá Liverpool. Við höfum unnið marga leiki þar."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner