Ásgeir Þór Ingólfsson er á leið í Grindavík samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Líklegt er að Ásgeir skrifi undir samning í kvöld en hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Grindvíkingar krækja í eftir að Tommy Nielsen og Óli Stefán Flóventsson tóku við þjálfun liðsins.
Líklegt er að Ásgeir skrifi undir samning í kvöld en hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Grindvíkingar krækja í eftir að Tommy Nielsen og Óli Stefán Flóventsson tóku við þjálfun liðsins.
Ásgeir spilaði tuttugu leiki með Haukum í sumar og skoraði tvö mörk en hann hefur leikið með liðinu nánast allan sinn feril.
Árið 2012 spilaði Ásgeir með Valsmönnum í Pepsi-deildinni.
Grindavík endaði í 5. sæti í 1. deildinni í sumar eftir að hafa gengið mjög illa í fyrri umferðinni.
Athugasemdir