Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 20. desember 2014 21:22
Jóhann Ingi Hafþórsson
Real Madrid heimsmeistari félagsliða 2014
Gareth Bale í leiknum í kvöld.
Gareth Bale í leiknum í kvöld.
Mynd: Getty Images
Real Madrid 2 - 0 San Lorenzo
1-0 Sergio Ramos ('37)
2-0 Gareth Bale ('51)

Real Madrid fullkomnaði gott ár í kvöld með öruggum sigri á argentínska liðinu San Lorenzo í úrslitaleik HM félagsliða.

Sergio Ramos kom spænsku risunum yfir eftir 37 mínútur með skalla eftir hornspyrnu Þjóverjans Toni Kroos.

Gareth Bale skoraði síðan annað mark Real sex mínútum eftir leikhlé þegar Torrico í marki San Lorenzo náði ekki að halda skoti hans.

Real hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk í leiknum þar sem Gareth Bale setti boltann meðal annars í þverslá andstæðinganna og Real skapaði töluvert fleiri og betri færi.

Real Madrid er því heimsmeistari félagsliða árið 2014 og eru vel að þeim titli komnir.

Athugasemdir
banner
banner
banner