Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. desember 2014 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Roberto Martinez: Gékk allt upp hjá þeim
Roberto Martinez, þjálfari Everton.
Roberto Martinez, þjálfari Everton.
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, þjálfari Everton, var allt annað en sáttur við lið sitt eftir 3-0 tap sinna manna gegn Southampton í gær.

Sigur Southampton var verðskuldaður en Everton er í tíunda sæti eftir leikinn.

,,Það er erfitt að taka þessu," sagði Martinez. Við náðum mjög góðum úrslitum á mánudaginn."

,,Við vildum halda áfram því sem við gerðum á mánudaginn en það gékk ekki eftir. Það hefur verið erfiðara að ná nokkrum úrslitum í röð eins og á síðustu leiktíð."

,,Southampton átti ekki skilið að tapa öllum leikjunum sem þeir töpuðu fyrir leikinn í dag en það gékk allt upp hjá þeim í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner