sun 21. desember 2014 22:31
Alexander Freyr Tamimi
Ítalía: Góð endurkoma Inter gegn Lazio
Inter náði sér í jafntefli.
Inter náði sér í jafntefli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Inter 2 - 2 Lazio
0-1 Felipe Anderson ('2 )
0-2 Felipe Anderson ('37 )
1-2 Mateo Kovacic ('66 )
2-2 Rodrigo Palacio ('80 )

Inter gerði vel í kvöld og tryggði sér 2-2 jafntefli gegn Lazio á heimavelli eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik.

Felipe Anderson kom Lazio í 2-0 í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 í leikhléi.

Í seinni hálfleik minnkaði króatíski landsliðsmaðurinn Mateo Kovacic þó muninn fyrir Inter og tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Rodrigo Palacio metin og tryggði heimamönnum stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner