Ally McCoist hefur yfirgefið stöðu sína sem þjálfari skoska stórliðsins Rangers og mun hann því ekki vinna út uppsagnarfrest sinn.
McCoist sagði starfi sínu lausu í síðustu viku eftir 2-0 tap gegn Queen of the South, en upphaflega stóð þó til að hann myndi vinna út 12 mánaða uppsagnarfrest.
Eftir 2-0 sigur gegn Livingston var þó ljóst að hann myndi hætta, þó hann fái borgað út uppsagnarfrestinn.

Aðstoðarmaður hans, Kenny McDowall, hefur verið ráðinn þjálfari út tímabilið, en Rangers stefnir á að komast aftur upp í skosku úrvalsdeildina.
Athugasemdir