Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Svekktur þrátt fyrir að hafa skorað sitt flottasta mark
Mateo Kovacic í leik með Inter.
Mateo Kovacic í leik með Inter.
Mynd: Getty Images
Mateo Kovacic gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 2-2 jafntefli Inter gegn Lazio í Seríu A í gærkvöldi, þrátt fyrir að hafa skorað vægast sagt stórbrotið mark.

Lazio komst yfir með tveimur mörkum frá Felipe Anderson, en Kovacic minnkaði muninn með stórkostlegu viðstöðulkausu skoti. Hann var þó ekki sáttur í leikslok.

,,Þetta var mitt besta mark á ferlinum, en það var svekkjandi að vinna ekki," sagði Kovacic við heimasíðu Inter.

,,Við erum ekki ánægðir. Við gerðum mistök í markinu þeirra en tókst að endurskipuleggja okkur."

,,Þegar þú lendir tveimur mörkum undir er erfitt að vinna, okkur skortir stöðugleika en þjálfarinn er nýkominn og ég er viss um að við munum bæta okkur."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner