Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 11:40
Magnús Már Einarsson
Eiginkona Mourinho stöðvaði hann í að taka við enska landslðinu
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að eiginkona sín hafi talað sig af því að taka við enska landsliðinu árið 2012.

Mourinho hafði áhuga á starfinu og var farinn að teikna upp byrjunarlið í huganum áður en eiginkona hans greip í taumana.

,,Konan mín spurði 'hvenær er næsti leikur?' Ég sagði 'eftir tvo mánuði," sagði Mourinho í viðtali á dögunum.

Eiginkona Mourinho sagði honum síðan að gleyma því að taka við enska landsliðinu.

,,Hvað ætlar þú þá að gera næstu tvo mánuðina? Gleymdu þessu. Þetta er ekki fyrir þig. Kannski eftir tuttugu ár," sagði eiginkonan.
Athugasemdir
banner
banner
banner