fös 27. ágúst 2004 17:12
Moyes um Rooney og orðrómana
David Moyes stjóri Everton er að vonum ekki sáttur með að vera að missa Wayne Rooney. Sögur ganga á milli manna hvort Newcastle eða Manchester United hreppi hann. Þegar það er rætt er oft talað um að leikmenn séu boðnir upp í kaupin en því neitar Moyes.

Moyes vill að sjálfsögðu fá sem mestan pening fyrir pilt en staðarblöð í Liverpool halda því fram í dag að Rooney vilji heldur fara til Newcastle. Þrátt fyrir það gefast Manchester United menn allt í sölurnar til að tryggja sér stráksa.

Talið er að Sir Alex Ferguson leggi fram nýtt tilboð um helgina og þá muni David Bellion einnig vera í samningnum. John O'Shea, Quinton Fortune og Kleberson hafa einnig verið nefndir til sögunnar í hugsanlegum skiptum á leikmönnum.
En á meðan eru Newcastle taldir ætla að bjóða Kieron Dyer, Lee Bowyer eða Shola Ameobi í skiptum ásamt vænri summu. En Moyes segir að engin slík tilboð hafi borist og ítrekar að Rooney verði ekki seldur fyrir félagaskiptagluggann nema viðunandi tilboð berist í hann.

"Wayne hefur staðfest með það að leggja fram ósk um sölu að hann vilji fara frá félaginu" sagði Moyes. "Ég er augljóslega vonsvikinn, hann er leikmaður sem við metum mikils og ég held að við höfum sýnt það í ákafa okkar til að fá hann til að skrifa undir nýjan samning.

Við ætluðum aldrei að selja hann en hann hefur lagt fram ósk um sölu og við verðum að taka það til greina. Í augnablikinu er hann leikmaður Everton og mun vera það þangað til við fáum tilboð í hendurnar sem við teljum vera sanngjarnt gagnhvart hæfileikum hans.
Þangað til við fáum það tilboð mun hann ekki fara neitt. Honum finnst það vera betra fyrir sig að fara burtu, en ef við fáum ekki upphæðina sem við viljum fá þá munum við hindra það að hann fari fyrir lok félagaskiptagluggans.

Þangað til fyrir viku hélt ég að Wayne myndi skrifa undir nýjan samning. Við höfðum verið í viðræðum tvisvar í viku síðustu fjórar eða fimm vikurnar og ég hélt að mér fannst við hafa náð framförum þar.

En ef Jonathan Woodgate hefði ekki farið til Real Madrid þá hefðu Newcastle aldrei boðið í hann sem gerði það augljóslega að verkum að Manchester United buðu í hann líka.

Það hefur verið kveikjan að öllu, því í mínum huga var Wayne ekki að fara neitt. Það hefur farið lítið fyrir áætlunum okkar útaf málinu. Okkur hafa verið gerð tilboð og við verðum að samþykkja eða neita.
Engir leikmenn hafa verið nefndir við mig. Mér hefur aldrei verið boðinn neinn leikmaður og bara til að bara til að ítreka við strákana sem hafa verið nefndir í því samhengi, þá get ég sagt að enginn ykkar hefur verið boðinn mér og mér finnst það vera rangt hjá klúbbunum ykkar að gera það án vitnesku ykkar.

Hann varð einn af bestu leikmönnum Evrópu hjá Everton. Mér finnst að ef hann gæfi klúbbnum eitt til tvö ár til viðbótar væri það betra fyrir þróun hans sem leikmanns. Það er ekki bara David Moyes sem finnst það heldur finnst hinum vitra Trevor Brooking það líka.
Ég held að áðdáendurnir muni eiga erfitt með að sætta sig við þetta af því að Wayne er einn af þeim en þetta er ákvörðun stráksins. Hann hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið og verið undir mikilli pressu. það er frábært tilboð hérna og hann ákvað að skrifa ekki undir það. Það var enginn sem reyndi að kaupa hann fyrr en fyrir tveim dögum, rétt í endann á félagaskiptaglugganum sem er ekki gott fyrir mig.

Hann hefur gefið í skyn að hann vilji spila fyrir lið í Evrópukeppni og bæði þessi lið (Newcastle og Manchester United) virðast passa þar inní. En ég hef enga hugmynd um hvort hann kýs að fara til.

Ég er knattspyrnustjóri liðsins en ákvarðanir verða að vera teknar af klúbbnum og ég er viss um að öll stærstu kaupin eru ekki bara undir stjóranum komið.

Í augnablikinu þá er hann ekki að fara neitt af því að við höfum ekki fengið viðunandi tilboð. Við höfum ekki tekið neinu tilboði og þangað til við fáum fleiri þá er hann ekki á leiðinni neitt. Við viljum ekki hafa óánægða leikmenn en ég er viss um að við fáum rétt verð fyrir Wayne."

Slapp
banner