lau 28. ágúst 2004 16:58
Hafliði Breiðfjörð
Man Utd býður hærra í Rooney
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Everton staðfestu í dag að Manchester United hafi gert annað tilboð í Wayne Rooney framherja félagsins. Félagið segir að tilboð Manchester United hafi verið hærra en 23,5 milljóna tilboð Newcastle sem var hafnað í síðustu viku. Ian Ross talsmaður Everton sagði: Manchester United hafa gert tilboð sem er hærra síðara tilboðið frá Newcastle."

Newcastle og Manchester United berjast nú um að fá til sín þennan 18 ára gamla gutta sem sló í gegn á EM í sumar og óskaði eftir því að verða seldur frá Everton í gær.

Félagaskiptaglugginn lokar seinnipartinn á þriðjudag og því verða menn að hafa hraðar hendur til að af kaupunum geti orðið.

Slapp
banner