mán 30. ágúst 2004 09:32
Robson rekinn frá Newcastle (Uppfært)
Sir Bobby Robson hefur verið rekinn frá Newcastle. Liðið hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun tímabils auk þess sem hann átti í rifrildi við Freddy Shepard stjórnarformann félagsins. Liðið hefur tapað tveimur leikjum og gert tvö jafntefli í þeim fjórum leikjum sem búnir eru af tímabilinu.

Robson kom til Newcastle árið 1999 og kom hann meðal annrs liðinu í Meistaradeildina. Liðið hefur þó ekki enn tekist að vinna titil undir hans stjórn og var farið að hitna ansi mikið í kolunum undir honum.

Það sem gæti hafa fyllt mælinn er Wayne Rooney sem ákveður í dag hvert hann fer, til Newcastle þar sem allt virðist vera í upplausn eða til Manchester United. Rooney gæti hafa skrifað undir hjá Manchester en ekkert er öruggt í því máli ennþá.

Steve Bruce hefur verið orðaður við félagið að undanförnu en lið hans, Birmingham, gerði þær vonir að engu fyrir Newcastle menn með því að setja á hann 5 milljón punda verðmiða í gær.

Alan Shearer er líklegastur til að taka við liðinu í augnablikinu en það skýrist væntanlega í dag eða á næstu dögum.

Ákvörðun Sir Bobby um helgina að láta hetju liðsins, Alan Shearer, sitja á bekknum vakti einnig reiði meðal stuðningsmanna liðsins en Shearer kom síðar inná sem varamaður þegar um 10. mínútur voru eftir af leiknum.
Slapp
banner