Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í hádeginu en Heimir er staddur á Flórída ásamt landsliðinu sem vann Kanada 2-1 í gær.
,,Við vorum ekki með neinar kröfur fyrir þennan leik. Við vildum bara skoða leikmenn í því skipulagi sem við höfum verið að nota og sjá leikmenn sem við höfum verið að spá í. Svo reynum við alltaf að leggja upp með að halda hreinu og vera með gott varnarskipulag," sagði Heimir aðspurður um hvað markmiðið hefði verið fyrir leikinn í gær.
Kristinn Steindórsson og Matthías Vilhjálmsson skoruðu mörk Íslands áður en Dwayne De Rosario minnkaði muninn fyrir Kanada.
Heimir sagðist nokkuð sáttur með leikinn en hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir