Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 22. janúar 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Viðar Örn til Jiangsu Guoxin-Sainty (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við kínverska félagið Jiangsu Guoxin-Sainty.

Viðar sló í gegn með Valerenga á síðasta tímabili og varð markakóngur í Noregi.

Fjölmörg félög sýndu Viðari áhuga en Valerenga var ekki til í að leyfa Viðari að fara ódýrt.

,,Valerenga setti rosalega háan verðmiða á mig og þau lið sem höfðu mikinn áhuga frá Evrópu voru ekki tilbúin að kaupa leikmann á svona háu verði frá Noregi," sagði Viðar við Fótbolta.net í fyrradag.

,,Þegar kínverska liðið kom með hátt tilboð gat Valerenga ekki sagt nei við því. Ég var spurður hvort að ég hefði áhuga og ég tel að ég sé að fara í sterkari deild."

,,Auðvitað er draumurinn að vera í ensku úrvalsdeildinni eða eitthvað svoleiðis en þegar þetta er það eina sem er raunverulegt þá er maður ánægður með það og þetta er spennandi áskorun."


Sjá einnig:
Viðar Örn: Var ekki bara í mínum höndum



Athugasemdir
banner
banner