þri 31. ágúst 2004 11:33
Hafliði Breiðfjörð
Man Utd staðfestir kaup á Rooney
David Moyes og Wayne Rooney er unglingurinn samdi við Everton
David Moyes og Wayne Rooney er unglingurinn samdi við Everton
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Manchester United hafa tilkynnt hlutabréfamarkaðnum að þeir hafi komist að samkomulagi í meginatriðum um kaup á Wayne Rooney frá Everton. Samningurinn er talinn vera upp á 25 milljónir punda og verða frágenginn þegar Rooney lýkur læknisskoðun og sjúkrahússkoðun í Manchester. Þrátt fyrir þetta segjast Everton menn enn vera að leita eftir hæsta mögulega kaupverði: ,,Við höfum alltaf sagt að við værum að leita eftir besta mögulega samningnum fyrir félagið." sagði Ian Ross talsmaður þeirra í morgun.
Slapp
banner