Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. janúar 2015 10:00
Elvar Geir Magnússon
Luis Enrique með fulla trú á Suarez
Suarez kom frá Liverpool í fyrra.
Suarez kom frá Liverpool í fyrra.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez hefur átt erfitt uppdráttar hjá Barcelona og ekki náð að sýna sínar bestu hliðar. Luis Enrique, þjálfari Börsunga, segist þó sannfærður um að úrúgvæski sóknarmaðurinn komist á beinu brautina.

Börsungar hafa unnið sex leiki í röð en Suarez hefur haft hægt um sig og aðeins skorað tvö mörk í ellefu leikjum.

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að mörkin munu koma frá Suarez," segir Enriqur.

Lionel Messi og Neymar skoruðu tvö mörk hver þegar Barcelona vann Elche 6-0 í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner