Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 26. janúar 2015 15:06
Magnús Már Einarsson
Schurrle vill fara til Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Andre Schurrle vill fara frá Chelsea og ganga í raðir Wolfsburg í heimalandi sínu Þýskalandi.

Schurrle hefur lítið fengið að spila á þessu tímabili og hann vill fara heim til Þýskalands.

Talið er að Chelsea vilji fá 22,5 milljónir punda fyrir Schurrle en hann kom til félagsins frá Bayer Leverkusen árið 2013.

Fimm önnur félög hafa sýnt hinum 24 ára gamla Schurrle áhuga.

Chelsea gæti notað peninginn sem fæst fyrir Schurrle til að kaupa Juan Cuadrado frá Fiorentina.
Athugasemdir
banner