Sæti í úrslitaleiknum í húfi
SportTv sýnir leik Stjörnunnar og ÍBV á Fótbolta.net mótinu í beinni útsendingu á morgun þriðjudag. Leikurinn hefst klukkan 20:15 í Kórnum.
Um er að ræða síðasta leik riðlakeppninnar og er þetta hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitaleik mótsins þar sem mótherjinn verður Breiðablik.
ÍBV dugir jafntefli til að komast í úrslitaleikinn en Stjarnan þarf sigur.
Magnús Valur Böðvarsson sér um að lýsa leiknum en Helgi Mikael Jónasson sér um dómgæsluna.
Hér má sjá stöðuna í riðlinum:
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir