Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. janúar 2015 22:22
Ívan Guðjón Baldursson
John Barnes verður heiðursgestur á Íslandi
Mynd: Getty Images
Árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldin 14. mars og verður hinn goðsagnakenndi John Barnes heiðursgestur.

Barnes lék fyrir Liverpool í 10 ár, eða frá 1987 til 1997, og skoraði 108 mörk í 407 leikjum.

John Barnes er 51 árs gamall í dag og starfar í sjónvarpi þar sem hann er knattspyrnusérfræðingur hjá ESPN og SuperSport.

Barnes vann sér inn mikið af titlum með Liverpool sem og persónulegum verðlaunum. Barnes lék sem kantmaður og er einnig goðsögn hjá Watford þar sem hann lék í sex ár.
Athugasemdir
banner
banner