mið 28. janúar 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Pardew vill fá Mutch til Palace
He cost too Mutch.
He cost too Mutch.
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace, er að reyna að styrkja leikmannahóp sinn fyrir lok félagaskiptagluggans.

Pardew á í viðræðum við QPR um kaup á miðjumanninum Jordon Mutch.

Mutch kom til QPR frá Cardiff á 5,5 milljónir punda síðastliðið sumar en hefur ekki náð að festa sig í sessi.

Palace vill borga fjórar milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla Mutch en QPR vill fá 5,5 milljónir eins og félagið borgaði síðastliðið sumar.

Viðræður milli félaganna standa nú yfir og ekki er ólíklegt að samkomulag náist fyrir lok gluggans á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner